Netlaunaseðlar, greiðsluseðlar og yfirlit - Rafræn þjónusta - Fyrirtæki - Arion banki
Netlaunaseðlar, greiðsluseðlar og yfirlit
Ávinningur
- Sparnaður vegna póstburðargjalda, pappírs, umslaga, vinnu starfsmanna og rekstur prentara
- Skjölin birtast í þeim netbanka þar sem móttakandi er með sín bankaviðskipti og launareikning sé um netlaunaseðla að ræða
- Aðgengi óviðkomandi er hindrað með öruggum aðferðum viðkomandi netbanka. Enginn pappír í óvörðum pósthólfum eða skúffum
- Umhverfisvæn samskipti
- Allt á einum stað í rafrænni skjalamöppu. Geymt í 7 ár
Panta samtal
Launaseðlar
- Launakerfi skilar launaskrá sem er sent til birtingar hjá Reiknistofu bankanna í gegnum Netbanka Arion banka
- Hægt að ráða því hverjir fá rafræna launaseðla
- Viðskiptavinir eða starfsmenn fara í netbanka, fletta upp á rafrænum skjölum og finna seðilinn þar
Greiðsluseðlar
- Rafrænn greiðsluseðill birtist eins og viðskiptavinir þekkja hann
- Hægt er að smella á greiðsluhnapp til að greiða viðkomandi reikning
- Reikningarnir eru aðgengilegir til uppflettingar fyrir greiðendur
Viðskiptayfirlit
- Hægt að senda viðskiptayfirlit eftir hentugleika, til dæmis ársyfirlit eða mánaðaryfirlit
- Hægt að greina á milli þeirra sem fá yfirlit í rafrænu formi og þeirra sem fá pappírsyfirlit
- Auðvelt að senda yfirlit til fjölda viðtakenda í einu
Innleiðing
- Prufuskrá frá bókhalds- og launakerfi fyrirtækis nýtt til að búa til útlit á rafrænt skjal eftir óskum viðskiptavinar
- Birting prófuð í öllum netbönkum
- Bankinn aðstoðar við markaðssetningu, t.d. með stöðluðu bréfi og leiðbeiningum til starfsmanna og starfsmannastjóra