Skilmálar - Sparireikningar - Sparnaður - Einstaklingar - Arion banki

Auk almennra skilmála innlánsreikninga, sem birtir eru hér að neðan, gilda skilmálar vegna debetkorta.

Almennir skilmálar Innlánsreikninga

Stofnun:

  • Við upphaf bankaviðskipta, þar með talið við reikningsstofnun, ber viðskiptavinur ávallt að sanna á sér deili með framvísun fullgildra persónuskilríkja útgefnum af stjórnvöldum, s.s. vegabréfi eða ökuskírteini og fylla út peningaþvættiseyðublöð.
  • Starfsfólki Kaupþings banka hf. er heimilt að synja umsókn um veltureikning

Binditími og ávöxtun:

  • Innistæða veltureiknings er óbundin og er alltaf laus til útborgunar
  • Veltureikningur er óverðtryggður reikningur
  • Sparisjóðsreikningar bjóða upp á óverðtryggða, verðtryggða og bundna innstæðu
  • Innlánsvextir eru samkvæmt vaxtaákvörðun Kaupþings banka hf. hverju sinni og eru því breytilegir. Vextir eru lagðir við höfuðstól mánaðarlega eða í lok hvers árs, fer eftir tegund reiknings, eða við eyðileggingu reikningsins

Innborganir og úttektir:

  • Innborganir bera vexti frá og með næsta degi eftir að lagt er inn á reikninginn
  • Ekki er hægt að taka út af bundnum reikningi fyrir en að binditíma loknum
  • Skilyrði fyrir úttekt af reikningi er að viðkomandi hafi fullgilda heimild til úttektar af reikningnum og sýni fullgild persónuskilríki við úttektir í banka

Debetkort og útgáfa tékka:

  • Debetkort er gefið út á veltureikning.
  • Óheimilt er að lána eða afhenda það til annars aðila.
  • Handhafi debetkorts er ábyrgur fyrir úttektum.
  • Viðskiptavinur skuldbindur sig til að:
    • nota ekki debetkortið eða gefa út tékka nema næg innistæða eða yfirdráttarheimild til staðar. Annað getur haft í för með sér refsiábyrgð lögum samkvæmt þ.e. lokun veltureiknings, sviptingu debetkorts og birtingu á nafni viðskiptavinar á Lokanaskrá.
    • tilkynna bankanum strax ef debetkortið, tékkhefti eða einstök tékkaeyðublöð glatast.
      nota eingöngu tékkaeyðublöð, sem honum hafa verið afhent til ávísunar á veltureikning sinn og skrifa ávallt rétt reikningsnúmer á tékkaeyðublöðin.
    • varðveita tékkhefti , debetkort og leyninúmer debetkortsins þannig að óviðkomandi aðili geti ekki komist yfir það.
    • afhenda reikningsbanka öll ónotuð tékkaeyðublöð og debetkort þegar reikningi er lokað eða þegar bankinn krefst þess af öðrum ástæðum, ella getur viðskiptavinur orðið ábyrgur gagnvart bankanum á tjóni, sem leiða kann af misnotkun eyðublaða/debetkorta.

Leyninúmer á innlánsreikningum, upplýsingar í síma, símamillifærslur og Þjónustusíminn:

  • Eingöngu reikningseigandi og prókúrhafi/umboðshafi mega millifæra af reikningum. Það þarf að gefa upp nafn, kennitölu og leyninúmer. Hámarksupphæð er á millifærslum hvern dag.
  • Viðskiptavinur skuldbindur sig til:
    • Varðveita leyninúmerið þannig að óviðkomandi hafi ekki aðgang að því
    • Breyta leyninúmeri án tafar (í næsta útibúi eða í Netbanka) og tilkynna til bankans gruni viðskiptavin að óviðkomandi hafi komist yfir leyninúmerið
    • Ábyrgjast allar færslur, aðgerðir og upplýsingargjöf sem framkvæmdar eru með leyninúmerinu
    • Ef númerið er skráð einhvers staðar til minnis, skal ekki gefa til kynna að um sé að ræða leyninúmer við bankann
  • Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um stöðu, hreyfingar og millifæra í Netbanka Kaupþings eða í Þjónustusíma Kaupþings með leyninúmeri og gilda sömu reglur um hann að öðru leyti en því að leyninúmeri er eingöngu hægt að breyta í Þjónustusímanum eða í útibúi Kaupþings.

Leyninúmer í hraðbanka

  • Við úttektir í hraðbanka notar viðskiptavinur fjögurra tölustafa leyninúmer (PIN) sem kemur í stað undirskriftar
  • Hvorki má gefa leyninúmerið upp til óviðkomandi né geyma það á sama stað og debetkort
  • Viðskiptavinur ábyrgist allar færslur og aðgerðir sem framkvæmdar eru með leyninúmerinu

Að öðru leyti gilda um innlánsreikninga almennar reglur Kaupþings Banka hf. og fjármunaréttarins um vörslu sparifjár.