Frétt - Fjölmiðlar - Um bankann - Arion banki

15.11.2002

Skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa brátt úr sögunni

Um áramót fellur úr gildi heimild einstaklinga samkvæmt lögum til þess að nýta sér skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa.  Skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa var fyrst veittur árið 1984 en þá voru eingöngu 18 félög á lista ríkisskattstjóra sem fullnægðu skilyrðum til þeirra kaupa. Þá var almenn hlutabréfaeign fremur lítil og ekkert opinbert verð skráð á markaði með hlutabréf. Tilgangurinn með heimildinni var að efla fjárfestingu í atvinnulífi og þótti heppilegt að gera það skattalega hagstætt fyrir einstaklinga að fjárfesta í atvinnufyrirtækjum. Nokkur kaflaskil urðu síðan á árunum 1990 og 1991 þegar ákveðin vakning varð meðal þjóðarinnar um að nýta sér þetta sparnaðarform. Í fyrstu voru engar kröfur gerðar um lengd eignarhalds og söluhagnaður var skattfrjáls upp að vissu marki  að fullnægðum ákveðnum skilyrðum. Á síðari árum hafa þessar kröfur þó aukist og til að mynda þurfa hlutabréf sem keypt eru í þessum tilgangi nú, að vera í eigu kaupandans yfir fimm áramót eftir að kaupin eru gerð. Þar að auki er greiddur 10% fjármagnstekjuskattur af öllum söluhagnaði.

Á meðfylgjandi mynd gefur að líta þann fjölda fjárfesta sem nýtt hefur sér þetta sparnaðarform á síðustu árum. Fjöldinn náði hámarki á árinu 1998, eða um 21 þúsund,  en síðan hefur dregið verulega úr. Á síðasta ári voru þeir sem nýttu sér skattaafsláttinn aðeins þriðjungur af fjöldanum 1998 eða um 7,7 þúsund. Heimildin hefur síðustu tvö árin ekki aðeins náð til innlendra fyrirtækja heldur einnig til félaga sem skráð eru í kauphöll á Evrópska efnahagssvæðinu.

Nú fer hins vegar hver að verða síðastur að nýta sér skattafslátt vegna tekjuársins 2002. Skilyrðið er eins og áður að menn bæti við hlutabréfaeign sína á árinu. Til að fá hámarksafslátt þarf einstaklingur að kaupa fyrir 133.333.- og nemur lækkun álagningar þá 31.008.- Enda þótt viðbótarlífeyrissparnaður verði að teljast eitt hagstæðasta sparnaðarformið sem völ er á í dag er ekki unnt að mæla með öðru en að menn nýti sér þennan skattaafslátt ef menn eiga þess kost. Sjóðum hefur nú farið fækkandi en að mati Greiningardeildar er ótal frambærilegra kosta í boði bæði á innlendum og erlendum hlutabréfamarkaði.

Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefur tekið miklum umskiptum síðustu ár og velta hefur farið sívaxandi. Enda þótt þátttaka almennings hafi verið mikilvæg í vexti og viðgangi hans hafa viðskipti á grundvelli skattaafsláttar ekki haft afgerandi áhrif í þróun hans. Vegna þessa er ekki búist við mikilli breytingu sökum afnáms afsláttarins á innlendan hlutabréfamarkað. 

 



Til baka



DagsetningFyrirsögn
30.08.2010

Jóhannes Jónsson hættur hjá Högum

Jóhannes Jónsson hættur hjá Högum
27.08.2010

Arion banki býður leikhúskort fyrir lægra verð

Arion banki býður leikhúskort fyrir lægra verð
18.08.2010

Arion banki styrkir HSÍ

Arion banki styrkir HSÍ
06.08.2010

Breytingar á innra skipulagi bankans

Breytingar á innra skipulagi bankans
05.08.2010

Arion banki og Ferðafélag barnanna

Arion banki og Ferðafélag barnanna
26.07.2010

Arion banki styður unglingastarf GSÍ

Arion banki styður unglingastarf GSÍ
22.07.2010

Viðurkenning frá JP Morgan Chase Bank

Viðurkenning frá JP Morgan Chase Bank
09.07.2010

Viðskiptavinir fá afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjum

Viðskiptavinir fá afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjum
07.07.2010

Lántakendum erlendra íbúðalána býðst að greiða 5.000 af hverri milljón

Lántakendum erlendra íbúðalána býðst að greiða 5.000 af hverri milljón
30.06.2010

Erlend íbúðalán - lausnir í boði til 1. september

Erlend íbúðalán - lausnir í boði til 1. september
25.06.2010

Arion banki er einn af bakhjörlum Íþróttasambands fatlaðra

Arion banki er einn af bakhjörlum Íþróttasambands fatlaðra
24.06.2010

Athugasemd frá Arion banka

Athugasemd frá Arion banka
16.06.2010

Tilkynning frá Arion banka vegna dóms Hæstaréttar

Tilkynning frá Arion banka vegna dóms Hæstaréttar
04.06.2010

Upplýsingar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og starf umboðsmanns

Upplýsingar um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og starf umboðsmanns
01.06.2010

Formleg bankastjóraskipti í Arion banka 1. júní

Formleg bankastjóraskipti í Arion banka 1. júní

Áfram