Rafræn þjónusta - Fyrirtæki - Arion banki

Rafræn þjónusta við fyrirtæki

Arion banki býður fyrirtækjum heildarþjónustu hvað varðar netbankaþjónustu, útgáfu innheimtukrafna, útgáfu og birtingu netskjala og gjaldeyrisviðskipti á Netinu. Bankinn leggur áherslu á að vera leiðandi í rafrænum viðskiptum og beintengingum við bókhaldskerfi (B2B tengingar).

Netbanki Arion banka í fararbroddi með stöðugum nýjungum fyrir fyrirtæki

Innheimtukröfur í Netbankanum

Innheimtukröfur er skilvirkt verkfæri til að gefa út og innheimta viðskiptakröfur fyrir fyrirtæki, félög og einstaklinga með eigin atvinnurekstur. Netbanki Arion banka þjónustar marga af stærstu kröfuhöfum landsins og veita sérfræðingar bankans viðskiptavinum sínum ráðgjöf og aðstoð við innleiðingu kröfuþjónustu, uppsetningu á beinum (B2B) tengingum ásamt því að aðstoða við almenna notkun kröfuþjónustunnar.

Gjaldeyrisviðskipti

Nýttu þér Netið til að greiða inn á erlenda bankareikninga með gjaldeyrisviðskiptakerfi Netbankans. Með gjaldeyrisviðskiptakerfinu má bæði spara fé og fyrirhöfn þar sem viðskiptavinir sjá sjálfir um að millifæra til útlanda án milligöngu starfsmanns bankans. Með því sparast kostnaður við hverja færslu og einnig fæst betri yfirsýn yfir allar erlendar greiðslur.

Gjaldeyrisviðskiptakerfið hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum þar sem notkun þess er afar auðveld og þægileg.

Netskjöl

Með því að gefa út skjöl eins og reikninga, greiðsluseðla, yfirlit og netlaunaseðla á rafrænu formi tryggja fyrirtæki sér, viðskiptavinum og starfsmönnum margþættan ávinning.

  • Sparnaður vegna póstburðargjalda, pappírs, umslaga, vinnu starfsmanna og rekstur prentara
  • Skjölin birtast í þeim netbanka þar sem móttakandi er með sín bankaviðskipti og launareikning sé um netlaunaseðla að ræða
  • Aðgengi óviðkomandi er hindrað með öruggum aðferðum viðkomandi netbanka. Engin pappír í óvörðum pósthólfum eða skúffum
  • Umhverfisvæn samskipti
  • Allt á einum stað í rafrænni skjalamöppu. Geymt í 7 ár
  • Lesa meira um netskjöl