Eignastýring fagfjárfesta er ætluð lífeyrissjóðum, stofnunum og öðrum fagfjárfestum
Þjónustan felur meðal annars í sér:
Mótun fjárfestingarstefnu
Grunnurinn að árangursríkri eignastýringu er vönduð og rétt mótuð fjárfestingarstefna sem er án efa mikilvægasta verkefni hvers fjárfestis. Eignastýring fagfjárfesta aðstoðar fjárfesta við val og mótun fjárfestingarstefnu út frá áralangri reynslu.
Virk eignastýring
Markmið með stýringu eigna er að hámarka ávöxtun með tilliti til áhættuþols viðskiptavinar og fjárfestingarstefnu. Eignasöfn viðskiptavina eru í virkri stýringu sérfræðinga sem fylgjast daglega náið með fjármálamörkuðum. Mikið er lagt upp úr sjálfstæði, teymisvinnu og sérhæfingu þar sem sérfræðingar á hverjum markaði koma reglulega saman og ákvarða megináherslur eignasafna. Eignasamsetning verðbréfasafns er þannig í stöðugri endurskoðun sem er nauðsynlegt í síbreytilegu umhverfi.
Áhættustýring
Áhættustýring og eftirlit er lykilþáttur í eignastýringu. Arion banki hefur byggt upp öflugt áhættustýringarsvið og sjá starfsmenn þess meðal annars um útreikning á daglegu gengi safna, útreikning á ávöxtun, eftirlit með að unnið sé innan skilgreindra heimilda fjárfestingarstefnu auk annarra áhættuþátta tengdum eignastýringu verðbréfasafna.
Heildarumsjón með verðbréfasöfnum
Margir lífeyrissjóðir, stofnanir og fyrirtæki vilja nýta sérhæfða þjónustu til að hafa heildarumsjón með verðbréfasöfnum, nýta sér sérfræðikunnáttu og spara jafnframt rekstrarkostnað. Þjónustan felur í sér vörslu og greiðslumiðlun með innlend og erlend verðbréf auk gengisútreikninga, fjárhagsbókhalds og útgreiðslu lífeyris. Jafnframt að annast skýrslugerð til opinberra aðila og gerð ársreikninga fyrir lífeyris- og verðbréfasjóði.
Upplýsingagjöf
Reglulega eru sendar upplýsingar til viðskiptavina sem eru sniðnar að þörfum þeirra. Annars vegar fá viðskiptavinir send mánaðarleg yfirlit yfir eignir og hreyfingar og hins vegar ársfjórðungslegar skýrslur þar sem eignasamsetning og ávöxtun er skoðuð ítarlega. Viðskiptavinir geta jafnframt fengið aðgang að Netbankanum til að fylgjast með eignasafni. Að auki er hægt að fá upplýsingar hjá sérfræðingum eignastýringar með símtali eða með því að senda tölvupóst.