Vantar þig lán til að kaupa tölvu?
- Námsmönnum býðst allt að 300.000 kr. tölvukaupalán til allt að þriggja ára
- Þetta er yfirdráttarlán og því þarftu ekki að greiða stimpilgjald eða lántökugjald
- Lánið er mjög sveigjanlegt en þú getur t.d. borgað meira af láninu á sumrin en veturna eða borgað lánið upp fyrir áætlaðan tíma. Þú einfaldlega semur við bankann um endurgreiðslu á láninu
- Ef þú ert ekki orðin(n) 18 ára verður lánið veitt á nafn forráðamanns
Hvernig sæki ég um?
- Þú velur þér tölvu og prentar út mynd af henni, ásamt verði, af heimasíðu verslunarinnar.
- Þú kemur í útibúið þitt og gengur frá láninu
- Þú færð lánið inn á reikninginn þinn og ferð í verslunina og greiðir tölvuna
- Þú labbar út með nýju tölvuna. Einfalt mál!
* Við tökum mið af viðskiptasögu þinni við afgreiðslu umsóknarinnar
VISA lán og MasterCard Staðgreiðslulán
Viðskiptavinir bankans sem eru með kreditkort geta gengið frá tölvukaupum á staðnum með VISA láni eða Staðgreiðsluláni frá MasterCard.
- Allt að 300.000 kr. lán á staðgreiðsluverði til allt að þriggja ára
- Þú færð veltutengda vildarpunkta eða krónur á næstu ferðaávísun
- Hraðari afgreiðsla, stuttur afgreiðslutími, þú velur þér tölvu, gengur frá láninu í versluninni
og færð tölvuna strax
- Framlengdur ábyrgðartími og innkaupatrygging
- Hægt er að versla önnur heimilistæki, hljómtæki, hljóðfæri og tölvubúnað með VISA láni
Spurðu um VISA lán eða MasterCard Staðgreiðslulán í versluninni.