Sparnaður - Einstaklingar - Arion banki

 

  • Greitt hefur verið úr Kaupþingi Peningamarkaðssjóði og Skammtímasjóði
  • Útgreiðsluhlutfall Peningamarkaðssjóðs er 85,3%
  • Útgreiðsluhlutfall Skammtímasjóðs er 75,1%
  • Greitt var inn á vörslureikning í nafni hlutdeildarskírteinishafa
  • Algengar spurningar og svör


Til að millifæra af vörslureikningi á annan reikning

  • Hafðu samband við Arion banka í síma 444 7000
  • Komdu við í útibúi Arion banka 

Greitt hefur verið úr Kaupþingi Peningamarkaðssjóði og Skammtímasjóði. Útgreiðsluhlutfall miðast við eignir sjóðanna 3. október sl. og er um heildargreiðslu að ræða. Upphæðin hefur verið lögð inn á vörslureikning í nafni hlutdeildarskírteinishafa í Nýja Kaupþingi banka hf. Vörslureikningurinn er innlánsreikningur.

Eignir Kaupþings Peningamarkaðssjóðs skiptust í innlán 65% og skuldabréf fjármálastofnana og fyrirtækja 35%. Eignir Kaupþings Skammtímasjóðs skiptust í innlán 48% og skuldabréf fjármálastofnana og fyrirtækja 52%. Aðrar eignir en innlán voru seldar úr sjóðnum miðað við endurmetið virði þeirra. 

Allar ákvarðanir varðandi hlutdeildarskírteinishafa sjóðanna voru teknar með jafnræði þeirra að leiðarljósi. Bankinn harmar þá eignarýrnun sem hlutdeildarskírteinishafar hafa orðið fyrir og þann tíma sem tekið hefur að ganga frá fullnaðaruppgjöri.

Vegna aðstæðna á fjármálamarkaði og tilmæla frá Fjármálaeftirlitinu hefur Stefnir hf. ákveðið að breyta reglum sjóðanna og slíta þeim. Slit sjóðanna miðast við 19. nóvember 2008.

Vegna útgreiðslu, bendum við á að ef útgreidd fjárhæð er hærri en upphaflegt stofnverð reiknast 10% fjármagnstekjuskattur af mismuninum og hefur þeirri upphæð verið haldið eftir.

 

Stefnir hf.