Félagaþjónusta - Þjónusta - Einstaklingar - Arion banki

Hvað felst í þjónustunni?

Innheimta ýmis konar gjalda í gegnum rafrænt innheimtukerfi bankans, Kröfulínuna. Þessi þjónusta hentar vel fyrir smærri sem stærri aðila, s.s. félagasamtök, skóla, smærri klúbba, safnanir og vinahópa.

Mögulegt er að skrá kröfuna á þrjá vegu: beint í gegnum Netbankann, með því að afhenda bankanum lista (á pappír eða tölvutæku formi) eða senda beint úr viðskiptamannabókhaldi.

Möguleikar í innheimtu í gegnum Kröfulínuna:

  • Dráttarvextir reiknast á kröfurnar ef óskað er
  • Hægt er að taka við innborgunum á seðlana
  • Mögulegt er að reikna staðgreiðsluafslátt
  • Sendar eru út ítrekanir ef kröfurnar eru ekki greiddar
  • Auðvelt er að fylgjast með hvernig innheimtur greiðast
  • Hægt að senda kröfur til vanskilainnheimtu en láta kröfurnar lifa í Kröfulínunni
  • Kröfuupphæðin leggst inn á reikning kröfueiganda um leið og hún greiðist

Yfirlit

Hægt er að skoða greiddar og ógreiddar kröfur þegar óskað er í Bankalínunni. Einnig er mögulegt að taka út skýrslur, t.d. félagatal, skuldalista, gjaldalista og gjöld næsta mánaðar í Bankalínunni.

Aðild

Í upphafi þarf að gera samning við viðskiptaútibú viðkomandi og skila inn félagalista á tölvutæku formi, til dæmis senda Excel skjal í tölvupósti á þjónustufulltrúann. Listinn þarf að innihalda upplýsingar um nafn og kennitölu félagsmanna ásamt upphæð félagsgjalda, gjalddaga og eindaga. Verð er mismunandi eftir því hvaða tegund þjónustu er valin.

Nánari upplýsingar veita þjónustufulltrúar bankans í síma 444 7000.