Gjaldeyrir - Erlend viðskipti - Þjónusta - Einstaklingar - Arion banki

Þegar farið er til útlanda koma nokkrir kostir til greina við val á farareyri. Bankinn selur erlendan gjaldeyri í þeim myntum sem notaðar eru í algengustu ferðalöndum Íslendinga. Ef bankinn selur ekki gjaldeyri í mynt þess lands sem ferðast á til þá er einfaldast að hafa með sér dollara (USD) eða evrur (EUR) og skipta þeim síðan yfir í viðkomandi mynt í banka eða sparisjóði þegar komið er á erlenda grund.

Form erlenda gjaldeyrisins getur verið tvenns konar:

  • Seðlar
  • Greiðslukort (debet/kredit)

Seðlar

  • Kostir: Nærri allir taka við reiðufé og þægilegt að hafa meðferðis til að greiða fyrir smærri vörukaup
  • Gallar: Erlendir seðlar eru seldir nokkuð háu verði. Ef þeir týnast getur hver sem er notað þá

Greiðslukort

Við notkun á greiðslukortum erlendis (debet/kredit) er nauðsynlegt að leggja á minnið PIN-númer kortsins, því hvort heldur verið er að taka út úr hraðbönkum erlendis eða nota kortið í verslunum, þá þarf oftar en ekki að slá inn PIN-númerið til að geta notað kortið.

Þegar tekið er reiðufé út á greiðslukort erlendis þá leggst þóknun ofan á úttektina.