Innheimtukröfur - Rafræn þjónusta - Fyrirtæki - Arion banki
Innheimtukröfur í Netbankanum er skilvirk leið til að gefa út og innheimta viðskiptakröfur fyrir fyrirtæki, félög og einstaklinga með eigin atvinnurekstur. Með innheimtukerfinu sparast bæði tími og peningar.
Ávinningur:
- Utanumhald frá stofnun til greiðslu á kröfu
- Rafrænt ferli alla leið
- Innheimtuferlar eftir þörfum viðskiptavina
- Beintenging við bókhaldskerfi
- Sjálfvirkt uppgjör á kröfum í milliinnheimtu beint inn á reikning viðskiptavina
- Öflugt yfirlit og skýrslur í Netbanka
Sérfræðingar bankans veita viðskiptavinum sínum ráðgjöf og aðstoð við innleiðingu kröfuþjónustu, uppsetningu á beintengingum á milli Netbankans og bókhaldskerfa ásamt því að aðstoða við almenna notkun kröfuþjónustunnar.
Handbók fyrir Innheimtukröfur er hægt að nálgast í Netbankanum og einni hjá hjá fyrirtækjafulltrúa í næsta útibúi bankans.