Lausnir til viðskiptavina - Fyrirtæki - Arion banki

Stefnt að rekstri lífvænlegra fyrirtækja

Stefnt er að rekstri lífvænlegra fyrirtækja.
Markmið fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja í skuldavanda er að viðhalda rekstri lífvænlegra fyrirtækja. Þegar metið er hvort félag er lífvænlegt er horft til þess hvort endurheimtur lána verði betri með fjárhagslega endurskipulagningu en við upplausn fyrirtækisins. Við mat á framtíðarskuldum fyrirtækis er horft til væntrar greiðslugetu og verðmætis fyrirtækis með hliðsjón af sjóðstreymisáætlun og möguleikum á hagræðingu í rekstri.

Þátttaka eigenda og stjórnenda fyrirtækja

Eigendur og stjórnendur þurfa að hafa fram að færa verðmæti til rekstursins og njóta trausts.
Almennt er stefnt að endurskipulagningu fyrirtækja í samvinnu við eigendur og stjórnendur þeirra. Meginreglan er þó sú að þeir þurfa að geta komið inn með nýtt eigið fé og / eða hafa fram að færa önnur verðmæti til rekstursins sem tryggir bankanum betri endurheimtur, sýna samstarfvilja við framkvæmd fjárhagslegrar endurskipulagningar og njóta trausts.

Úrræði við fjárhagslega endurskipulagningu

Lausnir eru metnar út frá stöðunni í hverju máli, en sömu aðferðarfræði er þó beitt í öllum málum.
Áður en hægt er að leggja mat á lausnir í einstökum málum er framkvæmd greining á viðkomandi fyrirtæki og skuldavanda þess. Markmiðið er að niðurstaða endurskipulagningar sé varanleg lausn sem skilar fyrirtækjum sem fara í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu heilbrigðum til framtíðar. Hér er lýst helstu úrræðum sem koma til greina við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Númerin vísa til reglna Arion banka sem birtar eru hér neðar á síðunni.

Reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja

Arion banki hefur gefið út reglur um framkvæmd fjárhagslegrar endurskipulagningar.
Arion banki hefur gefið úr reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Í reglunum er m.a. mætt kröfum í lögum 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja. Í reglunum er m.a. tekið á eftirfarandi þáttum:

  • skipulagi og ferlum við framkvæmd endurskipulagningar
  • skilyrðum sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að fá fjárhagslega endurskipulagningu
  • viðmiðum við mat á fyrirtæki, eigendum og stjórnendum
  • lýsingu á framkvæmd greiningar og mögulegum úrræðum
  • skilmálum í lánasamningum í kjölfar endurskipulagningar

Reglur Arion banka innihalda m.a. sameiginlegar reglur fjármálafyrirtækja sem gefnar voru út á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja og staðfestar af Fjármálaeftirlitinu.

Umboðsmaður viðskiptavina

Skal tryggja að farið sé eftir reglum við framkvæmd fjárhagslegrar endurskipulagningar.