Innlánstryggingar - Sparnaður - Einstaklingar - Arion banki
Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) er sjálfseignarstofnun sem starfar samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Hlutverk sjóðsins er að veita innstæðueigendum og viðskiptavinum fyrirtækja sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf lágmarksvernd.
Heimild: www.tryggingarsjodur.is/SS/
Nánari upplýsingar um Tryggingarsjóð innistæðueigenda og fjárfesta má finna á heimasíðu sjóðsins www.tryggingarsjodur.is
Hversu há fjárhæð er tryggð?
Tilskipanir ESB um innlánstryggingar og verðbréf kveða á um að lágmarkstrygging á EES-svæðinu skuli nema að minnsta kosti 20.000 evrum. Lágmarkstrygging Tryggingarsjóðs er 20.887 evrur fyrir hverja kennitölu hjá hverju aðildarfyrirtæki. Rétt er þó að taka fram að ef innstæða er í íslenskum krónum bætir Tryggingarsjóður þá fjárhæð í sömu myntHeimild: www.tryggingarsjodur.is/SS/
Nánari upplýsingar um Tryggingarsjóð innistæðueigenda og fjárfesta má finna á heimasíðu sjóðsins www.tryggingarsjodur.is
6.10.2008 - Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi verða tryggðar að fullu.
Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til.
Reykjavík 6. október 2008
Þessi yfirlýsing er ennþá í gildi.
Heimild: www.forsaetisraduneyti.is/frettir/nr/3032