Fréttir - Fjölmiðlar - Um bankann - Arion banki
Aðalfundur Arion banka 2010
Aðalfundur Arion banka fyrir starfsárið 2009, fyrsta heila rekstrarár bankans, var haldinn í dag, fimmtudaginn 20. maí, í höfuðstöðvum bankans við Borgartún. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf.
Á fundinum var fjölgað um einn í stjórn bankans. Nýr stjórnarmaður er Colin S. Smith frá Bretlandi. Í stjórn bankans sitja nú Monica Caneman stjórnarformaður, Guðrún Johnsen varaformaður, Kristján Jóhannsson, Steen Hemmingsen, Theodór S. Sigurbergsson og Colin C. Smith en þau hafa öll víðtæka reynslu af stjórnun, stefnumótun og rekstri fjármálafyrirtækja.
Guðrún Johnsen, varaformaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar. Í máli hennar kom m.a. fram að eitt af fyrstu megin verkefnum stjórnarinnar var að ráða Höskuld H. Ólafsson bankastjóra. Höskuldur hefur síðustu fjögur ár starfað sem forstjóri Valitors en þar áður starfaði hann í 17 ár hjá Eimskip. Hann hefur víðtæka stjórnunarreynslu hér á landi og erlendis. Höskuldur kemur til starfa 1. júní næstkomandi.
Guðrún sagði að framundan væru vandasöm og krefjandi verkefni fyrir nýja stjórn og starfsmenn. En með áframhaldandi seiglu og krafti starfsfólks muni takast að leysa úr erfiðari málum heimila og fyrirtækja á skemmri tíma og uppbygging efnahagslífsins ganga hraðar en ella.
Guðrún þakkaði bæði það samstarf og þá þolinmæði sem viðskiptavinir hafa sýnt á erfiðum tímum en það gefi fyrirheit um árangursríkt, áframhaldandi viðskiptasamband.
Í máli hennar kom einnig fram að aðstaða og tækifæri fólks í fjármálageiranum til að læra af fortíðinni hafi sjaldan verið betri, m.a. vegna skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Hún lagði enn fremur áherslu á að í þeirri vinnu sem framundan er þurfi að gæta þess að fara ekki úr einum öfgunum í aðrar og ekki megi heldur henda fyrir róða dýrmætri þekkingu og reynslu sem er til staðar.
Þá kom fram að stjórn bankans leggur mikla áherslu á að styrkja innra eftirlit bankans og auka samstarf við eftirlitsstofnanir. Innan bankans hefur orðið mikil breyting á regluverki og starfsháttum og beðið er eftir nýjum lagaramma sem Alþingi er nú að móta um starfsemi fjármálafyrirtækja. Stöður innri endurskoðanda, regluvarðar og áhættustýringar hafa verið efldar og samstarf þeirra aukið til muna.
Loks kom fram í máli Guðrúnar að hópur starfsmanna hafi þegar farið í gegnum skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Meðal þess sem ákveðið var í kjölfarið er að starfsmenn taka nú þátt í fræðslufundaröð um siðferði í samstarfi við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Einnig hefur starfshópur um siðferði verið skipaður í bankanum. Allt eru þetta mikilvægir áfangar í að byggja enn frekar undir stoðir bankans og gera hann öflugri til að takast á við þau verkefni sem framundan eru.
Rekstur Arion banka traustur
Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri fór yfir ársreikning síðastliðins starfsárs. Í máli hans kom fram að rekstur bankans gekk vel á árinu þrátt fyrir erfitt árferði og er enduruppbygging bankans vel á veg komin. Hún byggi á sterkum efnahag, góðri lausafjárstöðu og traustri fjármögnun.
Finnur sagði einnig að áhersla hafi verið lögð á að styrkja verkferla, verklagsreglur og innra eftirlit. Starfsfólk hafi lagt hart að sér við vandasöm og flókin verkefni og að erfitt ár væri að baki bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Eins og áður hefur komið fram nam afkoma bankans á árinu 12,8 milljörðum króna eftir skatta og arðsemi eiginfjár var 16,7%. Samþykkt var að greiða ekki út arð vegna ársins 2009.
Colin Spencer Smith - stjórnarmaður
Colin býr í Englandi. Eftir 39 ára feril hjá Midland Bank og síðar HSBC eftir yfirtöku, hefur hann víðtæka sölu-, viðskipta- og fyrirtækjabankareynslu í Bretlandi, Evrópu, Bandaríkjunum og Austur-Asíu með viðkomu í New York og Hong Kong. Eftir komuna frá Austur-Asíu árið 1987, tók hann ábyrgð á alþjóðlegum lánamálum bankans og stórum vandamálalánum. Í framhaldinu tók hann við stöðu lánastjóra HSBC árið 1997 þar til hann lét af störfum árið 2003. Sem framkvæmdastjóri í bankanum var hann einnig hluti af yfirstjórn, eigna- og skuldanefnd bankans og stjórnarmaður ýmissa dótturfyrirtækja. Í dag er Colin félagi í Chartered Institute of Bankers, fyrrum forseti Risk Management Association í London og var stjórnarformaður í British Bankers Accociation Wholesale Committee frá 2002 til 2003. Frá starfslokum sínum hefur Colin tekið að sér fjölda ráðgjafastarfa og fjölda verkefna sem dómkvaddur matsmaður.
Ávarp varaformanns Arion banka (23 KB)
Annual Report 2009 (5,707 KB)
Nánari upplýsingar veitir:
Berghildur Erla Bernharðsdóttir
Upplýsingafulltrúi
Skrifstofa bankastjóra
berghildur.bernhardsdottir@arionbanki.is
www.arionbanki.is
Beinn sími: 444 6127
Farsími: 856 6127
Sími: 444 7000
Fax: 444 6119
Til baka
| Dagsetning | Fyrirsögn |
|---|---|
| 07.09.2010 | Innlánsreikningar Arion banka fá ný nöfnInnlánsreikningar Arion banka fá ný nöfn |
| 06.09.2010 | Kyrrstöðusamningur ver hagsmuni bankansKyrrstöðusamningur ver hagsmuni bankans |
| 30.08.2010 | Jóhannes Jónsson hættur hjá HögumJóhannes Jónsson hættur hjá Högum |
| 27.08.2010 | Arion banki býður leikhúskort fyrir lægra verðArion banki býður leikhúskort fyrir lægra verð |
| 18.08.2010 | Arion banki styrkir HSÍArion banki styrkir HSÍ |
| 06.08.2010 | Breytingar á innra skipulagi bankansBreytingar á innra skipulagi bankans |
| 05.08.2010 | Arion banki og Ferðafélag barnannaArion banki og Ferðafélag barnanna |
| 26.07.2010 | Arion banki styður unglingastarf GSÍArion banki styður unglingastarf GSÍ |
| 22.07.2010 | Viðurkenning frá JP Morgan Chase BankViðurkenning frá JP Morgan Chase Bank |
| 09.07.2010 | Viðskiptavinir fá afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjumViðskiptavinir fá afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjum |
| 07.07.2010 | Lántakendum erlendra íbúðalána býðst að greiða 5.000 af hverri milljónLántakendum erlendra íbúðalána býðst að greiða 5.000 af hverri milljón |
| 30.06.2010 | Erlend íbúðalán - lausnir í boði til 1. septemberErlend íbúðalán - lausnir í boði til 1. september |
| 25.06.2010 | Arion banki er einn af bakhjörlum Íþróttasambands fatlaðraArion banki er einn af bakhjörlum Íþróttasambands fatlaðra |
| 24.06.2010 | Athugasemd frá Arion bankaAthugasemd frá Arion banka |
| 16.06.2010 | Tilkynning frá Arion banka vegna dóms HæstaréttarTilkynning frá Arion banka vegna dóms Hæstaréttar |
Áfram