Hálffimm fréttir - Gamlar Hálffimm fréttir - Eldri greinar og fróðleikur - Greiningardeild - Markaður - Arion banki
Dagsbrún: Afkomuviðvörun / Wyndeham sett í sölumeðferð
Dagsbrún sendi í gær frá sér neikvæða afkomuviðvörun vegna væntanlegs uppgjörs þriðja ársfjórðungs, ásamt því að greina frá ákvörðun stjórnar félagsins um að setja prent- og samskiptafyrirtækið Wyndeham í sölumeðferð. Lokað var fyrir viðskipti með hlutabréf Dagsbrúnar í dag vegna uppskiptingar félagsins og liggja viðbrögð markaðarins við þessum fréttum því ekki enn fyrir.
Viðskiptavild vegna Wyndeham færð niður um 1,5 ma.kr.
Í tilkynningu félagsins segir að í ljósi breytinga í starfsumhverfi á breskum prentmarkaði, sem að mati Dagsbrúnar má skýra með aukinni samkeppni og mikilli samþjöppun fyrirtækja á þessu sviði, sé ljóst að rekstraráætlun Wyndeham fyrir árið 2006 standist ekki. Telur stjórn félagsins því rétt að gera ráð fyrir 1,5 ma.kr. varúðarfærslu vegna eignarhlutar félagsins í Daybreak Acquisitions, móðurfélagi Wyndeham press Group.
Haft er eftir Þórdísi Sigurðardóttur, stjórnarformanni Dagsbrúnar, að salan á Wyndeham muni létta mikið á skuldsetningu samstæðunnar og skerpa áherslur í rekstrinum. Stefnt er að því að selja allan hlut félagsins í Wyndeham á næstu tveimur árum, en Dagsbrún gerði yfirtökutilboð í félagið í lok mars á þessu ári.
Viðskiptavild vegna Kögunar færð niður um 1 ma.kr.
Í tilkynningu félagsins kemur einnig fram að viðskiptavild að upphæð 1 ma.kr. hafi verið afskrifuð í kjölfar virðisrýrnunarprófs á eign félagsins í Kögun hf. Þá hafi fallið til einskiptiskostnaður vegna skiptingar og endurskipulagningar félagsins og loks að rekstur 365 miðla ehf. sé undir áætlunum fyrstu 9 mánuði ársins.
Uppskipting Dagsbrúnar samþykkt
Á hluthafafundi félagsins í morgun var samþykkt tillaga um skiptingu félagsins í tvö aðskilin rekstrarfélög, annars vegar fjölmiðlafélagið 365 hf. og hins vegar fjarskipta- og upplýsingatæknifélagið Teymi hf. Bæði félögin verða skráð í Kauphöll Íslands.
Ný stjórn 365 var kosin í dag að lokinni uppskiptingu Dagsbrúnar en hana skipa Jón Ásgeir Jóhannesson, Magnús Ármann, Pálmi Haraldsson, Árni Hauksson og Þorsteinn M. Jónsson. Jón Ásgeir Jóhannesson var kjörinn formaður stjórnar.
Uppgjör Dagsbrúnar fyrir þriðja ársfjórðung verður birt þann 29. nóvember næstkomandi samkvæmt fyrri tilkynningu félagsins.
Til baka