Upplýsingar frá bráðabirgðastjórn SPM - Arion banki
Kröfulýsingarfrestur vegna nauðasamninga SPM rennur út 6. nóvember nk.
Bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Mýrasýslu vill minna kröfuhafa á að kröfulýsingarfrestur vegna nauðasamninga sparisjóðsins rennur út föstudaginn 6. nóvember nk. Umsjónarmaður nauðasamninga er Garðar Garðarsson hrl., lögfræðiskrifstofunni Landslögum, Köllunarklettsvegi 2, 104 Reykjavík. Meðfylgjandi eru þau gögn er kröfuhöfum hafa verið send vegna heimildar Sparisjóðs Mýrasýslu til nauðasamningsumleitana.
Nauðsynlegt reyndist að breyta ákvæðum frumvarps til nauðasamninga, vegna breytinga á samsetningu hlutafjár í Nýja Kaupþingi banka hf. Er breytingin og ástæður hennar nánar útskýrðar í meðfylgjandi greinargerð vegna breytinganna. Hafi kröfuhafar fyrirspurnar vegna málsins eða óski frekari upplýsingum eru þeir hvattir til að senda erindi þess efnis til bráðabirgðastjórnarinnar á netfang formanns stjórnarinnar, sarnalds@bifrost.is. Þá getur bráðabirgðastjórn jafnframt eftir því sem henni er unnt haft milligöngu um öflun upplýsinga um Nýja Kaupþing banka hf., er kröfuhafar telja þörf á vegna mats á þeim greiðslum er boðnar eru skv. nauðasamningsfrumvarpi.
-
Tillaga að skriflegu atkvæði (83 KB)
FUNDARBOÐ
Varðar: Auglýsing um fund með kröfuhöfum Sparisjóðs Mýrasýslu þann 22. september næstkomandi.
Sparisjóði Mýrasýslu, kt. 610269-5409, með lögheimili að Digranesgötu 2, 310 Borgarnes, var með ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hinn 2. júlí 2009 skipuð bráðabirgðastjórn, með vísan til ákvæða laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 með síðari breytingum. Bráðabirgðastjórn fer með sömu heimildir að lögum og samþykktum sparisjóðsins sem stjórn og fundur stofnfjáreigenda sparisjóðsins hefði ella haft á hendi. Á meðan bráðabirgðastjórn ræður yfir sparisjóðnum gilda sömu takmarkanir á heimildum til að beita fullnustugerðum og öðrum þvingunarúrræðum gagnvart honum og ef sparisjóðurinn hefði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Yfirráðum bráðabirgðastjórnar yfir SPM lýkur 2. október n.k., nema bráðabirgðastjórn hafi þá lagt fyrir héraðsdóm kröfu um að sjóðurinn verði tekinn til slita, honum veitt heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamninga, eða ný stjórn hafi verið kjörin til að leysa bráðabirgðastjórn af hólmi, sbr. 1. – 3. tl. 100. gr. a laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 með síðari breytingum.
Fundur með kröfuhöfum Sparisjóðs Mýrasýslu verður haldinn þriðjudaginn 22. september 2009 kl. 15:00 að Hilton Hotel Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Á fundinum verður fjallað um núverandi stöðu sparisjóðsins. Þá verður á fundinum leitað eftir meðmælum kröfuhafa með frumvarpi að nauðasamningi, sem öllum þekktum kröfuhöfum hefur áður verið kynnt. Ef nægilegur fjöldi kröfuhafa veitir meðmæli með nauðasamningsumleitunum hyggst bráðabirgðastjórn senda formlega beiðni til héraðsdóms, fyrir 2. október n.k., um heimild til að leita nauðasamnings. Ella telur bráðabirgðastjórn að henni beri að vísa málefnum SPM til Fjármálaeftirlitsins til ákvörðunartöku.
Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem sem eiga kröfu á sparisjóðinn. Bráðabirgðastjórn óskar eftir því að fulltrúar kröfuhafa, sem hyggjast mæta á kröfuhafafundinn, skrái sig fyrirfram þar sem það getur flýtt fyrir bókun fundarins. Skráningu má senda í tölvupósti til formanns. Netfang hans er sarnalds@bifrost.is. Jafnframt óskar bráðabirgðastjórn eftir því að fyrirspurnir, sem fulltrúar kröfuhafa óska eftir umfjöllun um á fundinum, verði sendar fyrirfram, sé þess kostur, þar sem það getur gert umfjöllun á fundinum markvissari. Fyrirspurnir má senda í tölvupósti til formanns. Netfang hans er sarnalds@bifrost.is.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu sparisjóðsins www.spm.is.
Reykjavík, 11. september 2009,
f.h. bráðabirgðastjórnar Sparisjóðs Mýrasýslu,
Sigurður R. Arnalds formaður
Fréttatilkynning varðandi Sparisjóð Mýrasýslu.
Hinn 2. júlí s.l. skipaði Fjármálaeftirlitið Sigurð R. Arnalds hrl., Jón Hauk Hauksson hdl. og Margréti Gunnlaugsdóttur hdl. í bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Mýrasýslu (SPM). Bráðabirgðastjórn fer með þær heimildir sem stjórn og fundur stofnfjáreigenda hefði ella haft. Staða kröfuhafa sú sama og um greiðslustöðvun væri að ræða, sbr. 2. mgr. 100. gr. a laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 með síðari breytingum.
Kröfuhöfum hafa verið kynnt drög að frumvarpi að nauðasamningi, sem er byggður á greiðslum skv. kaupsamningi SPM við Nýja Kaupþing banka hf. (NKB). Útibú SPM og NKB í Borgarnesi hafa verið sameinuð og SPM er ekki lengur með rekstur á sínum vegum. Frekari ákvarðanataka varðandi SPM hefur verið í biðstöðu vegna þess að stofnefnahagsreikningur NKB liggur ekki fyrir. Bráðabirgðastjórn gerir ráð fyrir að boða til kröfuhafafundar um eða upp úr miðjum september n.k. þar sem vonast er til að fram komi afstaða kröfuhafa til tillögu að nauðasamningi.
Virðingarfyllst, 28. ágúst 2009,
f.h. bráðabirgðastjórnar SPM,
Sigurður R. Arnalds hrl., formaður
Bréf Bráðabirgðastjórnar (27 KB) - 28.08.2009
Bréf Bráðabirgðastjórnar (27 KB) - 07.07.2009
Frumvarp að nauðasamningi (98 KB) - 12.06.2009
Fylgiskjal með nauðasamningi (759 KB)
Nánari upplýsingar veitir formaður bráðabirgðastjórnar.
Netfang hans er sarnalds@bifrost.is