Greiðslujöfnun - Lán - Einstaklingar - Arion banki
Samkvæmt lögum um aðgerðir í þágu heimilanna verða öll verðtryggð lán, sem eru tryggð með fasteignaveði og eru í skilum, sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun og tekur sú greiðslujöfnun gildi frá og með gjalddaga í desember nk.
Frestur til að afþakka úrræðið fyrir desember gjalddaga rann út 22. nóvember. Lán viðskiptavina sem ekki afþökkuðu úrræðið fyrir tilsettan tíma, verða sett í greiðslujöfnun frá og með desember gjalddaga.
Bent skal á að þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni. Til þess að hún virki frá og með tilteknum gjalddaga þarf tilkynning um það að berast a.m.k. 10 dögum fyrir næsta gjalddaga.
Lántakandi getur afþakkað úrræðið með því að:
- Fara í Netbankann
- Koma í næsta útibú
Greiðslujöfnun verðtryggðs íbúðarláns gerir viðskiptavinum kleift að lækka mánaðarlegar greiðslur af íbúðarlánum sínum.
Helstu atriði:
- Mánaðarlegar afborganir lækka a.m.k. tímabundið á þeim lánum sem bera fasta vexti.
- Gera má ráð fyrir því að í lok lánstíma muni lántaki hafa greitt meira fyrir lán sem er greiðslujafnað.
- Hægt er að afþakka úrræðið hvenær sem er í Netbankanum eða í næsta útibúi.
- Greiðslubyrði tekur mið af greiðslujöfnunarvísitölu í stað vísitölu neysluverðs.
- Ekki eru til einhlít svör við því hvenær greiðslujöfnun á við þar sem óvissuþættir eru margir.
- Lántakandi getur sagt sig úr greiðslujöfnun hvenær sem er í Netbankanum.
Arion banki hvetur viðskiptavini sína til kynna sér ítarupplýsingar um greiðslujöfnun, sjá nánar.